Opið hús hjá FFA 6. des

Opið hús verður fimmtudaginn 6. desember nk. kl. 20:00 í Strandgötu 23.
Bjarni E. Guðleifsson á Möðruvöllum les úr bók sinni “ Úr hugarheimi – í gamni og alvöru”. 
Kannski verður gluggað í aðrar bækur.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, enginn aðgangseyrir. Kaffi á könnunni.
___________________________________________

Lumar þú á ferðasögu og/eða myndum og hefðir áhuga á að deila því með okkur á opnu húsi? Ef svo er vinsamlega sendu tölvupóst á hafdis@valur.net með upplýsingum og við setjum okkur í samband við þig.