Öskjuvegur 1 Sumarleyfisferð Trússferð

Brottför kl. 17 í rútu frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson
Verð: 59.600/51.600 Innifalið: Akstur, trúss, gisting og fararstjórn.
Skráningargjald kr. 8.000 greiðist við bókun. Lágmarksfjöldi: 10.
Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað, ekið með farangur á milli skála.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðalindum. Bíllinn heldur áfram og skilur eftir trúss ferðalanga í Dyngjufjalladal og í Suðurárbotnum.
2.d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, e.t.v. farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3.d. Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 19–20 km.
4.d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20–22 km.
5.d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15–16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng, farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Ekið til Akureyrar.