Ósóttar árbækur og Ferðir 2021

Félagar í FFA athugið, þeir sem greitt hafa árgjald vegna 2021 í netbanka og eru búsettir á Akureyri og nágrenni eru vinsamlegast hvattir til að sækja Árbók FÍ og tímaritið Ferðir á skrifstofuna í Strandgötu 23 milli kl. 14 og 17 eða eftir samkomulagi. Þeir sem ekki eiga heimabanka og vilja greiða á skrifstofunni eru líka velkomnir.