Þorraferð í Lamba. Skíðaferð

14.-15. febrúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: 9.000/7.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Ekið upp í Glerárdal að Sigurðargili, gengið þaðan á skíðum í Lamba, nýjan skála FFA,  þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið undir vernd Trölla Glerárdals. Haldið heimleiðis næsta dag.
Vegalengd 11 km hvora leið.  Hækkun 540 m.