Viltu taka þátt í fjölbreyttu og skemmtilegu starfi hjá FFA?

Ferðafélag Akureyrar auglýsir eftir áhugasömu fólki í stjórn og nefndir félagsins.

Skálanefndir félagsins fara í vinnuferðir tvisvar á ári. Aðrar nefndir eru ekki síður áhugaverðar eins og ferðanefnd sem sér um ferðaáætlun og gönguleikinn Þaulann. Nefnd um barna- og fjölskyldustarf og nefnd sem skipuleggur hreyfiverkefni eru í mikilli þróun. Félaga- og kynningarnefnd hefur það hlutverk að koma með nýjungar í starf FFA og kynna félagið út á við. Viðburða- gönguleiða- og ritnefnd hafa ákveðin hlutverk. Allar vilja þær fá liðsauka.

Nánari upplýsingar veitir Þorgerður, formaður FFA, netfang: formadur@ffa.is / sími: 692 6904

Kynntu þér starf FFA á heimasíðu félagsins, þar er margt að gerast. Við hlökkum til að heyra frá þér.