Fara í efni  

Þaulinn 2023

Gönguleikurinn Þaulinn 2023 með FFA

8 stöðvar (5 í leik fullorðinna og 3 í leik barnanna)

Yfirlit

 Ef þið eruð ekki alveg viss um hvar þessir staðir eru þá getur verið gott að fletta þeim upp á maps.is

Náttúran við Eyjafjörð býður upp á mörg spennandi tækifæri til hollrar og skemmtilegrar útiveru. Í samstarfi við nokkrar stofnanir og fyrirtæki á Akureyri vill Ferðafélag Akureyrar gera sitt til að kynna Eyfirðingum og öðrum landsmönnum útivistarmöguleika svæðisins fyrir alla fjölskylduna. Þetta gerir FFA m.a. með gönguleik sem kallaður er Þaulinn. Hann skiptist í flokk fullorðinna annars vegar og flokk barna yngri en 12 ára hins vegar. Leikurinn gengur út á að fara á fimm stöðvar fyrir fullorðna og þrjár stöðvar fyrir börn.
Leikurinn er skemmtileg og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna og glæsilegar útivistarvörur í vinning! Til að eiga möguleika á vinningi þarf að skila útfylltu og götuðu svarblaði á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar. Lokafrestur til að skila inn svarblaði er 20. september 2023

Á hverri stöð eru gögn frá FFA, kassi með plastumslagi og gestabók. Ef gestabók er fyrir á staðnum þá er plastumslagið að finna í kassa hjá gestabókinni. Í umslaginu er gatari, kort og leyniorð eða þraut sem á að skrifa á svarblaðið. Áætlaður göngutími er aðeins viðmið, hann fer eftir hverjum og einum og aðstæðum hverju sinni.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig en engu að síður langar okkur að sjá hve margir hafa hugsað sér að taka þátt þó svo þeir klári ekki leikinn.

Skráning (valfrjálst)

Svarblöð er hægt að fá á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar, Strandgötu 23, Akureyri. Einnig er hægt að prenta þau út hér af síðunni.

Fullorðnir:
Ef þú ferð á allar stöðvarnar fimm, svarar leyniorðunum rétt, gatar svarblaðið
og skilar því til FFA, getur þú átt möguleika á vinningi.


Svarblað til útprentunar fyrir fullorðna - hér (2 blöð)

Börn yngri en 12 ára:
Ef þú ferð á allar stöðvarnar þrjár, leysir þrautirnar sem eru á staðnum, gatar svarblaðið
og skilar því til FFA, getur þú átt möguleika á vinningi.
Allir þátttakendur í leik fyrir börn fá viðurkenningu.

Svarblað til útprentunar fyrir börn - hér (2 blöð)

 

Leyniorðin í leik fullorðinna 2023 finnur þú á þessum stöðum:

Bæjarfjall við Dalvík - kort - lýsing

Derrir í Þorvaldsdal - kort - lýsing

Krossastaðagil við Þelamörk - kort - lýsing 

Laufáshnjúkur - kort - lýsing

Uppsalahnjúkur - kort - lýsing

 

Í krakkaþaulanum 2023 er lítil þraut á hverri stöð, þær finnur þú á þessum stöðum:

Fuglaskoðunarhúsið við Tjarnartjörn í Svarfaðardal - kort - lýsing

 Garðsárreitur í Eyjafjarðarsveit - kort - lýsing
- loftmynd til skýringar um staðsetningu reitsins

Steinmenn á Súlumýrum - kort - lýsing

 

 

 

 

Þegar frestur er útrunninn verður dregið úr innsendum svarblöðum og vinningar afhentir. Það verður auglýst sérstaklega og haft samband við vinningshafa.
Hafir þú fyrirspurnir eða vantar upplýsingar, vinsamlegast hafðu þá samband við skrifstofu FFA, sími 462 2720 mánud. - föstud. kl. 14.00-17.00 eða sendu tölvupóst á ffa@ffa.is

Hér eru gps punktar fyrir stöðvarnar 2023:
Sumir staðirnir eru ekki nákvæmlega skilgreindir þannig að það gæti verið einhver ónákvæmni í þessum tölum. Hnitin miðast við sjálfan ákvörðunarstaðinn ekki leiðina.
Ath. að þegar áfangastaðurinn er sýnilegur á GPS-tækinu í göngunni verður líka að taka mið af landslaginu og slóðinni í dimmviðri.

--------------------------------------------

Styrktaraðilar: