Næsta ferð 19. maí: Fuglaskoðun fyrir börn -breyting

Fuglaskoðun við Kristnesstjörn

Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen
Þátttaka ókeypis.
Í maí er vorið að vakna og rétti tíminn til að skoða fuglana okkar. Í fuglaskoðunarferðinni ætlum við að reyna að sjá og heyra eins margar tegundir og mögulegt er og kenna ykkur að þekkja sem flesta fugla bæði staðfugla og farfugla. Tveir skrýtnir og skemmtilegir fuglakallar ætla að leiðbeina okkur við skoðunina. Gott er að hafa með sér kíki og skriffæri. Svo er nauðsynlegt að klæða sig eftir veðri. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst. Ekki þarf að skrá sig í þessa ferð.