Söguferðir/raðganga: Gengið í fótspor Theódórs Friðrikssonar bréfapósts. Önnur ferð. Fnjóskadalur - Ljósavatn

Ferðinni hefur verið aflýst!

Söguferð/raðganga: Gengið í fótspor Theódórs Fririkssonar bréfapósts
Theódór Friðriksson (1876-1948) var fæddur í Flatey á Skjálfanda og ólst upp við kröpp kjör á svæðinu milli Skjálfanda og Eyjafjarðar. Theódór ritaði ævisögu sína: „Í verum“ er kom út 1941. Í bókinni eru mjög skýrar lýsingar á lifnaðarháttum alþýðunnar á þessum tíma. Í bók sinni segir Theódór frá vetrarferð sem hann fór í janúar 1900 frá Þönglabakka í Þorgeirsfirði að Skútustöðum við Mývatn. Erindið var að flytja bréf frá prestinum á Þönglabakka til prófastsins á Skútustöðum. Theódór var fimm daga á leiðinni austur í Mývatnssveit.

Ferðafélag Akureyrar efnir til sögugöngu í ágúst 2023 til minningar um þessa póstferð Theódórs Friðrikssonar. Við ætlum að ganga megin hluta leiðarinnar í þremur áföngum:

Önnur ferð
Sunnudagur 20. ágúst
Brottför kl. 8:30 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Ekið verður að Hallgilsstöðum í Fnjóskadal og gengið þaðan austur með Þingmannalæk og norðan megin í Ljósavatnsskarði að Litlutjörnum og þaðan um Arnstapa og Vatnsenda að kirkjustaðnum Ljósavatni. Gengið eftir hestaslóðum og malarvegum nær alla leiðina.
Vegalengd 17 km. Gönguhækkun mjög óveruleg.
Fararstjórn: Ingvar Teitsson
Verð: 3.000/4.500 kr. Innifalið: Fararstjórn.

Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.

Búnaðarlisti