11.-12. febrúar. Þorraferð í Fjallaborg. Skíðaferð

11.-12. febrúar. Þorraferð í Fjallaborg. Skíðaferð  Myndir úr svipaðri ferð
Ekið á einkabílum austur eftir þjóðvegi1 á móts við Skógarmannafjöll. Þaðan er gengið á skíðum suður að skálanum Fjallaborg við Rauðuborgir (8,5 km) þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið í friðsæld öræfanna.
Daginn eftir er gengið til baka í bílana. Hámarksfjöldi 10 manns.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: kr. 4.500 / kr. 4.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 10.00