14.-16.júlí: Látraströnd og Fjörður.

Bakpokaferð með allan viðlegubúnað og gist í tjöldum (3 skór).

1.dagur: Brottför er frá skrifstofu FFA kl.14:00 og ekið er með göngufólk að Svínárnesi norðan Grenivíkur og þaðan gengið út Látraströnd að Látrum.

2.dagur: Gengið upp Fossdal um Uxaskarð (520 m) og þaðan upp á Gjögurfjall (710 m) og notið útsýnisins. Síðan er haldið niður Skarðsdal til Keflavíkur.

3.dagur: Gengið úr Keflavík austur yfir Blæjukamb og Mígindiskamb austur Botnsfjall. Þaðan er haldið í Þorgeirsfjörð og síðan áfram austur yfir hálsinn að göngubrú yfir Austurá þar sem rútan bíður hópsins og flytur til Akureyrar.

Fararstjóri er Helga Guðnadóttir.

Verð kr.5.000.- / 6.000.-