26 -30. júlí. Öskjuvegur 2

Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað, ekið með farangur á milli skála. Fullt fæði.
1. d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla.
2. d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, e.t.v. farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3. d. Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 19 – 20 km.
4. d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20 – 22 km.
5. d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15 – 16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng, farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Ekið til Akureyrar.

Fararstjóri: Roar Kvam.
Verð: kr. 55.500 / 49.600
Innifalið: Fararstjórn, akstur, trúss, og gisting. (fullt fæði kr. 15.000 ekki innifalið í verði.)
Skráningargjald kr. 8.000 greiðist við bókun.
Brottför frá FFA kl. 16.00