Á toppnum með Ferðafélagi Akureyrar


Verkefnið felst í því að þáttakendur fá bækling um leikinn á skrifstofu FFA , þar finna þeir fyrsta leyniorðið og gata í fyrsta sinn þáttökuspjaldið sitt. Í bæklingnum eru svo upplýsingar um 5 staði sem fara þarf á, finna þar leyniorð og gata þáttökuspjaldið. Í lok sumars ættu að vera 6 mismunandi göt á spjaldinu og 6 mismunandi leyniorð. Að þessu loknu skrifar þáttakandi nafn og heimilisfang á spjaldið og sendir á skrifstofu FFA.

Þeir sem hafa allt rétt fá viðurkenningarskjal um að þeir séu “þaular” (þauli er sá sem þekkir eitthvað í þaula). Síðan verður dregið úr réttum spjöldum og þeir heppnu fá útivistarvörur í vinninga

Komið og verið með, það kostar ekkert.

http://issuu.com/ferdaaetlun/docs/__aulab__klingur?e=4367428%2F3204828