Allir skálar FFA eru nú opnir

Nú hafa allir skálar FFA, í Laugafelli, Herðubreiðarlindum og Dreka, verið opnaðir. Einnig er hægt að bóka gistingu í gönguskálum félagsins, Lamba á Glerárdal, Bræðrafelli, Botna og Dyngjufelli. Frekari upplýsingar um skálana eru á heimasíðu FFA, þar er einnig hægt að senda fyrirspurn um skálagistingu. Athygli er vakin á að börn að 18 ára fá fría gistingu í Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum sumarið 2020.