Bláskógavegur

Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Sigurgeir Sigurðsson. Verð: 10.800/10.300. Innifalið: Fararstjórn og akstur.

Ekið er til Húsavíkur og á Þeistareykjaveg að vegslóða út að Sæluhúsmúla. Þaðan verður gengin hin forna leið Bláskógavegur (ath. ekkert vatn á leiðinni!) að býlinu Undirvegg í Kelduhverfi. Komið við í Gljúfrastofu ef aðstæður leyfa. 21 km.