Bræðrafell

Bræðrafell. Myndir

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson 
Verð: 10.100 / 7.600. Innifalið: Gisting og fararstjórn.
1. d. Ekið frá Akureyri í Herðubreiðarlindir og umhverfið skoðað áður en gengið er í Bræðrafell,  17 km ganga um hraun fremur gott yfirferðar. Gist í Bræðrafelli, skála FFA. 
2. d. Gengið á Kollóttudyngju og gígurinn  litinn augum. Síðan er gengið um Bræðrafellið og hinar ýmsu jarðmyndanir skoðaðar. Gist í Bræðrafelli.
3. d. Gengið meðfram Herðubreið og á leiðinni eru skoðaðir margir gígar, drýli og hellar. Seinnipartinn er ekið heim.