Engidalur - Einbúi. Skíðaferð

Engidalur - Einbúi. Skíðaferð
23. mars. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið inn Bárðardal og að Engidal eða eftir því sem færð leyfir. Þar er stigið á skíðin og gengið meðfram Kálfborgarárvatni og út heiðar og ása þar til haldið er niður að býlinu Einbúa þar sem farið er í bílana. (Bíll ferjaður að Einbúa). Vegalengd 21 km. Göngulækkun 200 m.