Opið hús mánudaginn 12. janúar kl. 20. "Þú sem ert á jörðu"

Opið hús kl. 20 í húsnæði FFA Strandgötu 23

Mánudagur 12. janúar 2026

Nína Ólafsdóttir rithöfundur fjallar um bókina sína „Þú sem ert á jörðu“. Nína er fædd í Reykjavík en búsett á Akureyri ásamt eiginmanni og syni. Hún er menntuð í líffræði og hefur stundað rannsóknir á sviði sjávarvistfræði, m.a. á Svalbarða. Hún hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar Íslenskra bókmennta árið 2022 fyrir handritið að bókinni "Þú sem ert á jörðu" sem er hennar fyrsta bók. Þar fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á sama tíma og miklar umhverfislegar og samfélagslegar breytingar eru að eiga sér stað. Hún berst við að draga fram lífið á heimaslóðum sínum, einsömul ásamt hundinum sínum og þar hefst ævintýralegt ferðalag þeirra félaga um ólík vistkerfi jarðar. Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um umhverfisbreytingar, útdauða og framvindu lífs á jörðinni. Hér er maðurinn ekki Guð heldur tilheyrir hann náttúrunni, og er jafn háður kenjun hennar og aðrar lífverur á jörðinni
 
Kaffi og konfekt, spjall og spurningar. Fjölmennið meðan húsrúm leyfir.
 
Viðburðanefnd