Félagsfundur og ferð helgarinnar

Almennur félagsfundur FFA verður haldinn mánudaginn 16. janúar næstkomandi á Strandgötu 23.  Mál félagsins verða rædd og farið yfir hvað er framundan. Allir velkomnir.

Næstu helgi verður svo létt skíðaferð, upplögð fjölskylduferð og hvetjum við sem flesta að vera með en þátttaka er ókeypis. Brottför er kl. 10 á einkabílum frá Strandgötunni.

Skráning fer fram á ffa@ffa.is eða á facebook viðburði ferðarinnar.