Ferðaáætlun 2006

Nú er ferðaáætlun félagsins fyrir árið 2006 komin inn á heimasíðuna

Í nýju ferðaáætlunni er reynt að hafa ferðir eins fjölbreyttar og kostur er og er von okkar að sem flestir finni ferðir við sitt hæfi.  Nokkrar nýjar ferðir eru á dagskránni sem ekki hefur verið boðið upp á til þessa, þar má nefna söguferð um Eyjafjörð í maí og jarðfræðiferð í Fnjóskadal í júní.  Einnig eru í boði spennandi ferðir um Tröllaskagann og á Herðbreið.

Fyrsta ferðin á dagskrá er skíðaferð yfir Bíldsárskarð í byrjun mars.  Ef sjóalög verða góð í janúar og febrúar mun félagið standa fyrir skíðaferðum en það verður þá auglýst sérstaklega þegar þar að kemur.