Ferðakynning Ferðafélags Akureyrar

Ferðakynning Ferðafélags Akureyrar verður haldin fimmtudaginn 30. janúar klukkan 20.00 í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Örn Þór Emilsson kynnir ferðir félagsins 2020 í máli og myndum og gestur kynningarinnar Tómas Guðbjartsson flytur erindi sitt "Hlúð að hjarta landsins". Kynning á útvistarvörum frá fyrirtækjum í bænum. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.