Ferðakynning FFA 2020

Ferðakynning félagsins fyrir árið 2020 var haldin 30. janúar s.l. í húsnæði VMA. Hana sóttu milli 50 og 60 manns. Örn Þór Emilsson kynnti ferðirnar í máli og myndum og að kynningu lokinni var boðið upp á kaffi og kleinur. Erindi kvöldsins „Hlúð að hjarta landsins“ flutti Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og fjallagarpur. Myndir: Grétar Grímsson