Ferðasumarið 2017: Kynning á dagskrá sumarsins

Júnímorgunn við Goðafoss
Júnímorgunn við Goðafoss

Formaður ferðanefndar, Linda Björnsdóttir segir okkur frá ferðum sumarsins í máli og myndum.

Ferðirnar eru að venju fjölbreyttar og skemmtilegar, styttri og lengri og allir ættu að geta fundið hina fullkomnu ferð fyrir sig.

Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni og við hvetjum ykkur til að mæta, sjá hvað er í boði og taka þátt í sumarævintýrunum með okkur.

Ertu með valkvíða eða ekki alveg viss hvert skal halda í sumar? Þetta er leiðin til að spá og spekúlera, hitta fararstjórana og mögulega ferðafélaga og taka í kjölfarið upplýsta ákvörðun um gönguferðir sumarsins.