Fljótsheiði. Skíðaferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið fram í Reykjadal og upp á Stafnsveginn. Þaðan gengið suðvestur að Herforingjavörðunni á Narfastaðafelli. Gengið vestur í Heiðarsel, Gafl við Seljadalsá, norður í Narfastaðasel og út í Skógarsel. Saga eyðibýlanna rakin. Endað við hringveg 1 við malarnámu austan í Fljótsheiði. Vegalengd 17 km. Gönguhækkun 120 m.