Gönguvikan hafin

Nú er fyrri gönguvikan okkar hafin. Fyrsta ferðin verður í kvöld og farið verður um Krossanesborgir undir leiðsögn Helgu Guðnadóttur og Guðrúnar Eggertsdóttur. Mæting er kl. 19 við skrifstofu Ferðafélags Akureyrar, Strandgötu 23. Ekki láta ykkur vanta - skráning á www.ffa.is

Dagskrá vikunnar:

Krossanesborgir skor
18. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn

Gásir skor
19. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn

Sumarsólstöður á Múlakollu. 970 m skor skor skor
20. júní. Brottför kl. 20 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn
Gengið upp á Múlakollu frá gamla Múlaveginum og upp dalinn norðan Brimnesár. Vegalengd alls 8 km. Gönguhækkun 930 m.

Kjarnaskógur skor
21. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn

Jónsmessuferð á Miðvíkurfjall. 560 m skor skor
22. júní. Brottför kl. 21
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Farastjóri: Roar Kvam. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn
Gengið frá veginum við Hrossagil efst í Víkurskarði. Af fjallinu blasir Eyjafjörðurinn við og fjöllin vestan hans. Þægileg ganga við flestra hæfi. Vegalengd 2 km. Gönguhækkun 270 m.