Hálshnjúkur við Ljósavatnsskarð, 627 m. Fjall mánaðarins

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Grétar Grímsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er í Vaglaskóg og að Efri-Vöglum þar sem gangan hefst. Gengið er upp hlíðina eftir stikaðri leið og á Hálshnjúkinn þar sem frábært útsýni er yfir Fnjóskadalinn og Ljósavatnsskarðið. Farið er sömu leið til baka.5 km. Hækkun 380m.