Hamraborg. Gönguferð Fjall mánaðarins

Ferðinni á fjall mánaðarins Hamraborg sem átti að fara 22. masr var frestað.

Ákveðið verður í vikunni hvort reynt verður að fara um næstu helgi  29. eða 30. mars
Fylgist með á heimasíðunni www.ffa.is
Ferðanefndin

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.

Fararstjóri: Frímann Guðmundsson

Verð: kr. 2.000/1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Öngulstöðum og að sumarhúsinu Seli. Þaðan er gengið um Háuborg og upp Öxlina og að Haus. Áfram haldið um Litlaskarð og upp á Hamraborgina. Þaðan er gott útsýni til allra átta.
Vegalengd 6 km. Gönguhækkun 650 m. Göngubúnaður miðist við færi og aðstæður.