Haustlitaferð í Jökulsárgljúfur, Hólmatungur - Ásbyrgi

Haustlitaferð í Jökulsárgljúfur, Hólmatungur - Ásbyrgi  
14. september. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23.  
Fararstjóri: Örn Þór Emilsson.
Verð: 9.200 / 8.700. Innifalið: Akstur og fararstjórn. 
Farið er með rútu í Hólmatungur í Jökulsárgljúfrum. Siðan er gengið niður með gljúfrum Jökulsár á Fjöllum um Hólmatungur, Vesturdal, Hljóðakletta, farið um Kvíar og komið að Klöppunum þar sem sést yfir furðusmíðina Ásbyrgi.  Falleg haustlitaferð í stórbrotnu landslagi sem varla á sínn líka hér landi. Vegalengd um 19 km.
Skráningargjald 8.000 greiðist við bókun.