Hestfjall og Siglunesmúli.

Hestfjall og Siglunesmúli.
10. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir
Verð: 2.000 / 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Genginn hringur umhverfis Nesdalinn. Gangan hefst á Siglufirði og er gengið upp í Hestskarð og þaðan á Hestskarðshnjúk. Síðan Hestfjall, í Nesdal, upp á Nesnúp, Siglunesmúla, fjallið yfir Kálfsskarð, upp á Ytri Staðarhólshnjúk og að lokum aftur yfir á Hestskarðshnjúkinn og að bílum. Vegalengd: 27 km, gönguhækkun: 680 m.