- Skrifstofan
 - Félagið
 - Ferðir og viðburðir
 - Hreyfiverkefni
 - Skálar
 - Myndir
 
Hólafjall, 862 m eða  Hleiðargarðsfjall, 1024 m. Gönguferð  
Ekið  á einkabílum að Þormóðsstöðum í Sölvadal. Þaðan er gengið upp hlíðina á  hrygg Hólafjalls og fylgt gömlum akveg sem lagður var inn á hálendið.  Komið er til baka að Þormóðsstöðum. Sé gengið á Hleiðargarðsfjall er  farið á fjallið frá Saurbæ og gengið upp fjallshrygginn þar til komið er  á toppinn.  Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn af báðum  fjöllunum. Farin er sama leið til baka.
Fararstjóri: Grétar Grímsson. 
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00