Hraunhellir í Lindahrauni

Á laugardegi er ekið á einkabílum í Herðubreiðarlindir og gengið þaðan að hraunhelli í Lindahrauni og hann skoðaður. Gist verður í tjöldum eða skála í Lindunum og haldið heim á sunnudegi. Nauðsynlegur aukabúnaður er ljósker og hjálmur.
Fararstjóri: Haukur Ívarsson.
Verð: Gisting í húsi: kr. 6.500 / kr. 6.000. Gisting í tjaldi: kr. 4.100 / kr. 3.600.
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 8.00