Hreppsendasúlur. Fjall mánaðarins 1052 m

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Haldið á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir við stórkostlegt útsýni til allra átta. Þetta er frekar létt ganga við hæfi flestra. Alls 6 km. Hækkun 850 m.