Hrossadalur – Miðvíkurfjall. Gönguferð

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Einar Brynjólfsson 
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið verður fram Hrossadal suður af Víkurskarði og leifar af gamalli rétt skoðaðar. Svo er haldið áfram för að Þórisstaðaskarði og sveigt til norðurs og gengið á Miðvíkurfjall 561 m þaðan sem víðsýnt er um Eyjafjörð.