Hvannadalshnúkur, 2119 m

Hvannadalshnúkur er hæsti tindur landsins og takmark flestra fjallgöngumanna. Þeir sem leggja á sig gönguna uppskera ríkulega fyrir erfiðið enda er umhverfið með því stórbrotnasta sem fyrirfinnst hér á landi. Ekið á einkabílum í Skaftafell föstudaginn 18. maí og gist í svefnpokagistingu í Svínafelli, (ath. pöntun). Gengið á Hnúkinn laugardaginn 19. maí, en sunnudagurinn er til vara vegna veðurs. Gönguhækkun er 2000 metrar og má gera ráð fyrir að gangan taki í heild um 10-15 kl.st. Ekið heim daginn eftir uppgöngu.
Nauðsynlegur búnaður er : skór með góðum sóla, mannbroddar, sigbelti, ísöxi, sólgleraugu, sóláburður, skjólgóður fatnaður og nesti.
Undirbúningsfundur verður haldinn mánudaginn 14. maí kl. 20.00 í húsnæði FFA.
Nauðsynlegt að skrá sig í þessa ferð fyrir 18. apríl 2011.
Fararstjóri: Jón Heiðar Rúnarsson
Verð: kr. 20.000 / kr. 17.000.
Skráningargjald kr. 8.000 greiðist við bókun.
Innifalið: Fararstjórn
Brottför auglýst síðar.