Kaldbakur, 1173 m. Skíða- eða gönguferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjórn: Félagar frá 24x24.
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönsku landmælingamönnunum árið 1914. Vegalengd 13 km. Gönguhækkun 1100 m.