Kaldbakur. 1173 m. Skíða- eða gönguferð Fjall mánaðarins

12. apríl. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: kr. 2.000/1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Kaldbakur er fjall Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönsku landmælingamönnunum árið 1914.