Kerling sjö tinda ferð

Laugardagurinn 28 júlí rann upp bjartur og fagur ekki amalegt að fara í fjallaferð. Ganga átti á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum og farið þaðan á fjallið, upp Öxlina með öllum sínum hausum þaðan yfir heimari Lambárbotna upp snjóinn og þaðan á fjallið. Í þetta sinn var nóg um vatn. Tekin var góð stund í að skoða útsýnið enda sást yfir hálft landið. Síðan var farið niður af Kerlingu sömu leið og svo gengið norður eftir tindunum, Hverfanda (1320 m), Þríklökkum (1360 m), Bónda (1350 m), Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu (1213), og Ytrisúlu (1144) og niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Myndir úr ferðinni er að finna á myndsíðu og einnig hér: http://sdrv.ms/OJx77l eru myndir sem Guðbjartur Guðbjartsson tók.