Kerling - Sjö tinda ferð 1538m

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir og Frímann Guðmundsson.
Verð: 4.500/2.500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum og farið þaðan á fjallið, gengið norður eftir tindunum Hverfanda (1320 m), Þríklökkum (1360 m), Bónda (1350 m), Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu (1213 m) og Ytrisúlu (1244 m). Gengið niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar.
Vegalengd um 20 km. Topp ferð