Kerling. Sjö tinda ferð.

Kerling. Sjö tinda ferð. 1538 m.  Myndir
13. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. 
Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir og Frímann Guðmundsson
Verð: kr. 3500 / kr. 3.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum og farið þaðan á fjallið, gengið norður eftir tindunum Hverfanda,  Þríklökkum, Bónda, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu og Ytrisúlu. Gengið niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Topp ferð.