Klængshóll-Skriða

Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Grétar Grímsson
Verð: kr. 7.000 / kr. 6.500. Innifalið: akstur og fararstjórn.
Ekið að Klængshóli í Skíðadal þar sem gangan hefst. Gengið inn Heiðinnamannadal og er hann sveigir til suðurs er farið til vinstri upp í Skriðudalsskarð yfir í Skriðudal. Í lokin er gengið niður með fallegu gljúfri Syðri - Tunguár. Vegalengd 19 km, gönguhækkun 1010 m.