Krafla-Mývatn. Skíðaferð

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. 
Ekið í Kröflu. Gengið þaðan að Leirhnjúki og hann skoðaður. Þaðan gengið um Sátu og norðan við Hlíðarfjall. Ferðin endar á að renna sér niður þægilega hallandi gil og að flugvellinum. Um 12 km. Lækkun 260 m.