Kynning á sumarleyfisferðum FFA 2023

Nokkrar svokallaðar sumarleyfisferðir eru í boði í sumar á vegum FFA sem fararstjórar munu kynna sérstaklega í máli og myndum þann 2. febrúar kl. 20 að Strandgötu 23. 

Þær ferðir sem kynntar verða eru:
Náttúruskoðun og sjálfsrækt í Fjörðum, 14.-16. júlí.
Bræðrafell-Askja, 16.-19. júlí.
Öskjuvegurinn trússferð, 23.-27. júlí.
Helgarferð á Herðubreið, 11.-13. ágúst.

Allir velkomnir, heitt á könnunni.