Laufáshnjúkur, Jónsmessunæturganga.

Laufáshnjúkur, Jónsmessunæturganga. Sjá myndir
23. júní. Brottför kl. 21 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Roar Kvam
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500.  Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að prestssetrinu á Laufási og gengið þaðan á hnjúkinn. Auðvelt er að komast upp, en síðasti hlutinn er nokkuð brattur. Þegar upp er komið blasir við stórkostlegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og Höfðahverfið. Vegalengd 6 km. Gönguhækkun 680 m.