Lúxusgönguferð í Mývatnssveit 2019

Laugardaginn 26. október n.k. er fyrirhuguð gönguferð í Mývatnssveit ásamt gistingu á Fosshótelinu þar í sveitinni.
Farið verður á einkabílum frá skrifstofu FFA við Strandgötu kl. 10:00. Boðið verður uppá 3-4 tíma gönguferð og í ár verður farin önnur leið en á síðasta ári. Að henni lokinni skrá menn sig inn á hótelið.
Fararstjóri verður Stefán Sigurðsson eins og tvö síðustu ár.
Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í gönguferðinni til þess að nýta sér þetta tilboð:
Þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo (humarsúpa í forrétt, lambafile með stökkum kartöflum og fersku salati í aðalrétt og Panna Cotta með vanilluís í eftirrétt + kaffi) ásamt morgunverði. Tilboðsverð samtals fyrir tvo: 29.800 kr.
Tilboðsverð fyrir einstaklingsherbergi ásamt kvöldverði og morgunmat: 19.500 kr.
Á hótelinu er sauna (opið kl. 16-22) sem er opið öllum gestum.
Happy hour er kl. 16-18 og 22-23.

Skráning í ferðina hjá FFA í síma: 462-2720 á opnunartíma kl. 11-13 alla virka daga (eftir 1. okt.) eða á netfangið ffa@ffa.is