Næsta ferð 1. ágúst: Vesturárdalur-Kóngsstaðadalur

Vesturárdalur-Kóngsstaðadalur skorskorskorskor 

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.  
Fararstjóri: Una Þ. Sigurðardóttir.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Hér er genginn fáfarinn fallegur hringur um Vesturárdal og Kóngsstaðadal. Gengið frá Stekkjarhúsi í Skíðadal og fram dalinn. Við eyðibýlið Stafn er beygt fram Vesturárdal og gengið uppúr suðurbotni hans og gegnum skarðið milli fjallanna Ingjalds og Staðargangnafjalls. Þegar komið er upp í skarðið er rölt fram á Ingjald 1275m og síðan gengið fyrir Vesturárdalsfjall, fjallið á milli Vesturárdals og Kóngsstaðadals. Síðan haldið niður í Kóngsstaðadal og að Þverá í Skíðadal. Mjög falleg fjallasýn og útsýni yfir Skagafjörð og Skíðadal. Vegalengd um 22 km. Gönguhækkun um 1200 m. Munið að skrá ykkur hér
Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig. Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur á hverjum tíma, gæta hreinlætis, hafa handspritt meðferðis og taka tillit til ferðafélaga nú þegar tveggja metra reglan er valkvæð.