Næsta ferð

Laugardaginn 14. apríl. Þorvaldsdalur. Skíðaferð    2 skórGengið á skíðum frá bænum Fornhaga í Hörgárdal að Stærra-Árskógi. Njótum töfra Þorvaldsdalsins á skíðum. Hallinn norður dalinn er langur og rennslið niður hann er frábært í góðu skíðafæri. Þetta er ótrúlega skemmtileg skíðaganga.

Fararstjóri: Grétar Grímsson
Verð: kr. 2.800/3.600
Brottför kl. 9.00

Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
föstudaginn 13. apríl milli kl. 17.30 og  19.00 eða í
tölvupósti ffa@ffa.is

Ferðanefnd FFA