Næsta ferð

Þriðjudaginn 1. maí. Súlur, 1213 m. Gönguferð    2 skór
Súlur.
Árleg ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gangan hefst innan við sorphaugana á Glerárdal og er gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er fallegt útsýni og gangan er því vel tímans virði.
Ferð við flestra hæfi.
Fararstjóri: Kári Árnason
Verð: Frítt
Ath. Mæting og brottför frá sorphaugum kl. 9.00

Ferðanefnd FFA