Næsta ferð 18. febrúar: Galmaströnd ATH gönguferð

Galmaströnd: Ákveðið hefur verið að breyta ferðinni í gönguferð

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Frímann Guðmundsson
Gengið er frá Syðri-Reistará og niður undir sjó. Síðan norður til Hjalteyrar og skoðað hvaðan við fáum heita vatnið. Svo út Arnarnesnafir og aftur að Reistará um Bjarnarhól.
Vegalengd alls 12-13 km. Gönguhækkun lítil.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.

Skráning