Næsta ferð 18. júlí: Fossdalur í Ólafsfirði

Fossdalur í Ólafsfirði skorskor

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði og út í Fossdal. Tilvalin fjölskylduferð. Vegalengd ca. 10-12 km. Gönguhækkun ca. 100 m. Munið að skrá ykkur hér
Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig. Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur á hverjum tíma, gæta hreinlætis, hafa handspritt meðferðis og taka tillit til ferðafélaga nú þegar tveggja metra reglan er valkvæð.