Næsta ferð 28. maí: Kaldbakur

Kaldbakur 1173 m. Skíða- eða gönguferð skidiskidiskidi

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Viðar Sigmarsson
Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Fjallið er talið vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á fjallið er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönskum landmælingamönnum 1914. Gengin er stikuð leið.Vegalengd alls um 12 km. Gönguhækkun 1140 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

Skráning