Næsta ferð 3. október: Þingmannahnjúkur

Þingmannahnjúkur skorskor

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Vignir Víkingsson.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Eyrarlandi, Þingmannavegurinn genginn þaðan upp í heiðina og upp á Þingmannahnjúkinn og áfram á Leifsstaðafjall ef aðstæður leyfa. Vegalengd samtals 8 km. Gönguhækkun 680 m. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og eins metra fjarlægð, gæta hreinlætis og hafa handspritt meðferðis.